jæja ég ákvað loksins að setjast niður hérna eftir kennslu í
nokkrar mín er reyndar að fara að þjálfa á eftir. En loksins er
eitthvað að frétta af mér, fyrst og fremst er tölvan mín að gefa
upp öndina, ég kemst ekki lengur á netið í henni, þar sem hún
segist vera buin að týna netkortinu. jejejejjejejjejejje,,, sem er
ekki gott, mín er ekki beint par ánægð með þetta ástand þar sem
þetta veldur því að ég verð að fara á netið í skólanum jejejejje,
en ja hitt sem er að fretta er að ég er að ná mér af meiðslunum sem
búin eru að vera að hrjá mig. Það atvikaðist þannig að ég fórnaði
þér aðeins of mikið í leiknum á móti ÍS, skuttlaði mér á eftir einu
boltanum út af vellinum og endaði ferðina á veggnum, svakalega
þægilegt..... Eftir það var ég sett í gifsspelku í 10 daga, vegna
þess að olnboginn leit út eins og fílamaðurinn væri mættur á
olnbogann, frekar bólginn og ekkert hægt að sjá á myndum
fyrir bólgu. En svo eftir að þessir 10 dagar væru liðnir kom í
ljós að þetta væri líklega sködduð og illa haldin taug (taugin
sem er við vitlausabeinið :-) ) En staðan í dag er allavega sú að
ég er farin að æfa (eða allavega reyna það og spilaði í gær á
móti Keflavík) en á reyndar að vera teypuð þar sem læknarir
eru komnir að þeirri niðurstöðu að þetta sé skaddað innra
liðband, tognaðar vöðvafestinar og blæðing á milli beinanna í
framhaldleggnum. Þá verð ég vist að fara varðlega og reyna að teipa
þetta allavega í viku í viðbót. En þetta er allt á réttri leið
jejejejjejjjej,, en ja ég verð víst að fara að koma mér í
íþrótttahúsið er víst að fara að þjálfa í klukkutíma og svo er
æfing kl 18:40 (snemma jejjjejeeejej)
Seeja later
Dúbbs